Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar hugleiðingar

Viðskipti og rekstur

Viðskiptavinurinn á ekki að borga fyrir þína þroskasögu

Viðskiptavinurinn á ekki að borga fyrir hvað verkefnið tók þig langan tíma.

Eftir Vilbert Gústafsson

Ekki fyrir hversu erfitt það reyndist.

Og ekki fyrir allt sem þú lærðir á leiðinni.

Hann er að borga fyrir það sem kemst í notkun hjá honum og hvaða verðmæti það skapar.

Samt verðleggjum við oft vinnu út frá eigin fyrirhöfn. Tímum, kostnaði og því hvað við lögðum mikið á okkur.

En erfið vinna er ekki sjálfkrafa verðmæt vinna.

Og ef lausnin er ný fyrir þér, þú hefur litla reynslu af henni eða enga raunverulega sönnun fyrir því að hún virki, þá finnst mér eðlilegt að það sjáist líka í samningnum.

Ekki selja tilraun eins og fullreynda lausn.

Skilgreindu hvað á að gerast, hvað telst árangur og hvaða áhættu þú ert sjálfur tilbúinn að bera.

Stundum getur það jafnvel þýtt:

Ef þetta virkar ekki, greiðir þú mér ekki.

Það þýðir ekki að tími og kostnaður skipti aldrei máli.

En þeir eru þínir innri mælikvarðar.

Viðskiptavinurinn á fyrst og fremst að finna fyrir verðmætunum.

Svo spurningin er:

Ertu að verðleggja niðurstöðuna, eða ertu enn að rukka fyrir hvað það tók þig langan tíma að komast þangað?

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗