Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar hugleiðingar

Viðskipti og rekstur

Þú ert ekki varan sem þú selur

Það virðist augljóst þegar maður skrifar þetta.

Eftir Vilbert Gústafsson

En ég er ekki viss um að ég hafi alltaf hagað mér þannig.

Þegar maður hefur lagt mikinn hluta af sjálfum sér í vinnuna getur orðið óþægilega stutt á milli:

„Hann vill ekki kaupa þetta.“

og

„Hann telur mig ekki nógu góðan.“

Þetta eru auðvitað tvær gjörólíkar fullyrðingar.

Viðskiptavinurinn getur hafnað verðinu, tímasetningunni, vörunni eða hugmyndinni.

Hann gæti jafnvel haft rétt fyrir sér.

Ekkert af því segir sérstaklega mikið um virði manneskjunnar sem stendur hinum megin við borðið.

Samt grunar mig að margir frumkvöðlar þekki þessa tilfinningu.

Kannski er ein ástæða þess að við yfirhönnum, yfirþjónum og eigum erfitt með að rukka almennilega sú að einhvers staðar inni í okkur erum við enn að reyna að tryggja að enginn geti sagt nei.

Ég hef verið að læra að hann má segja nei. Stundum er það jafnvel skemmtilegra, því þá má: hvers vegna, er það verðið, er það útfærslan, er það tíminn - og þá er tækifæri til þess að læra.

Það er furðulega frelsandi.

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗