Þú færð hugmyndina.
Þú metur hugmyndina.
Þú samþykkir hugmyndina.
Þú úthlutar tíma og peningum í hana.
Og þegar hún fer aðeins fram úr áætlun útskýrir þú fyrir sjálfum þér hvers vegna það sé í raun mjög skynsamlegt.
Í stærra fyrirtæki myndum við líklega kalla þetta lélega stjórnarhætti.
Einyrkinn þarf því kannski eitt hlutverk til viðbótar.
Auðlindastjórann.
Frumkvöðullinn má koma með hugmyndina. En auðlindastjórinn spyr:
Hvað kostar að prófa hana?
Hver er stysta trúverðuga leiðin að svari?
Hvað þarf að víkja ef við gerum þetta?
Og hvaða gögn þurfa að liggja fyrir áður en hún fær meira?
Kannski er stærsta hættan við að vera sinn eigin yfirmaður ekki að enginn segi manni hvað maður eigi að gera.
Heldur að enginn hafi vald til að segja manni hvað maður eigi ekki að gera.