Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar hugleiðingar

Viðskipti og rekstur

Þegar allt starfsfólkið er þú

Starfsmannamál hjá Vilbert.is ganga almennt vel.

Eftir Vilbert Gústafsson

Mæting er góð, starfsandinn þokkalegur og lítið um veikindafjarvistir.

Ég var meira að segja svo heppinn að vera valinn af öllu starfsfólkinu til að fara í nám hjá MIT Sloan og MIT CSAIL.

Samstaðan var algjör.

Mannauðsstjórinn studdi ákvörðunina. Forstjórinn samþykkti fjárfestinguna. Fjármálastjórinn lét sig hafa kostnaðinn og kaffivélastjórinn hét fullum stuðningi.

Allir voru sammála.

Kannski vegna þess að þeir eru allir ég.

Og þar byrjar vandinn.

Hver leiðbeinir yfirmanninum?

Það er ákveðið frelsi í því að reka sig sjálfur.

Enginn segir manni að mæta.

Enginn ákveður hvað maður á að læra.

Enginn hafnar hugmyndinni manns á fundi.

Og enginn kallar mann inn á skrifstofu og segir:

„Vilbert, þetta gengur bara ekki svona.“

Sem er mjög þægilegt.

Þangað til maður þarf einmitt á því að halda.

Þegar þú ert starfsmaðurinn, stjórnandinn, fjármálastjórinn og eigandinn getur verið hættulega auðvelt að útskýra fyrir sjálfum sér hvers vegna allt sem maður gerir sé fullkomlega skynsamlegt.

Verkefnið sem fór fram úr áætlun var „nauðsynleg þróun“.

Vinnan fram á nótt var „bara tímabundin“.

Kaupin sem áttu ekki að gerast voru „fjárfesting“.

Og hugmyndin sem enginn hefur enn beðið um er auðvitað „aðeins á undan markaðnum“.

Ábyrgð er erfiðust þegar enginn er fyrir ofan þig

Ég held að þetta sé ein af stærri áskorunum þess að vinna sjálfstætt.

Ekki frelsið.

Heldur skorturinn á mótvægi.

Þegar enginn hefur formlegt vald til að stöðva þig þarftu sjálfur að byggja kerfi sem gerir einhverjum kleift að spyrja óþægilegu spurninganna.

Af hverju ertu að gera þetta?

Hvað átti þetta að skila?

Hvað sagði áætlunin?

Hvenær ætlarðu að viðurkenna að þetta virkar ekki?

Og kannski sú erfiðasta:

Ertu að taka góða ákvörðun, eða ertu bara mjög góður í að útskýra ákvörðun sem þú ert þegar búinn að taka?

Það þarf ekki endilega stjórn.

Það getur verið samstarfsmaður, mentor, mastermind hópur, vinur eða einhver sem maður treystir nógu mikið til að gefa leyfi til að segja:

„Nei. Nú ertu að rugla.“

Mannauðsdeildin hefur því tekið ákvörðun

Starfsmannamál hjá Vilbert.is ganga áfram glimrandi.

En stjórnendur félagsins hafa ákveðið að auka eftirlit með starfsmanninum.

Sérstaklega þar sem grunur leikur á að hann geti stundum verið bæði þrjóskur, of bjartsýnn og óþarflega sannfærandi þegar hann rökstyður eigin hugmyndir.

Kaffivélastjórinn hefur lýst yfir fullum stuðningi.

Hann hefur reyndar aldrei sagt nei við neinu.

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗