Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar hugleiðingar

Lífið og gildin

Síminn minn missti aðgangsheimildina

Ég tók nýlega eina af betri rekstrarákvörðunum hjá sjálfum mér.

Eftir Vilbert Gústafsson

Síminn minn fær ekki lengur ótakmarkaðan aðgang að athygli minni.

Hann var orðinn svolítið eins og starfsmaður sem gengur inn á skrifstofuna á fimm mínútna fresti og segir:

„Má ég aðeins trufla þig? Þetta tekur bara augnablik.“

Svo líður dagurinn.

Núna fer síminn á Do Not Disturb í að minnsta kosti sex tíma af vinnudeginum og aftur frá kvöldmat.

Símtöl fá tíma í dagatalinu. Þau fá ekki lengur að ákveða sjálf hvenær þau eru mikilvæg.

Ég blokka líka stóran hluta vikunnar fyrir það sem ég kalla Maker vinnu. Þá á ég að hugsa, skrifa, skapa og klára.

Svo fær Manager vinnan sitt pláss. Símtöl, skilaboð, fundir og allt hitt sem hefur þann merkilega eiginleika að geta fyllt heilan dag án þess að maður muni eftir hverju maður kom í verk.

Þetta hefur skipt miklu meira máli en ég bjóst við.

Ekki vegna þess að ég vinni fleiri tíma.

Heldur vegna þess að ég er meira til staðar í þeim tíma sem ég hef.

Þegar ég er að vinna, þá vinn ég.

Þegar ég er með fjölskyldunni, þá vil ég vera þar.

Sharran orðaði þetta á einfaldan hátt:

Vertu þar sem fæturnir eru.

Kannski er fókus ekki flóknari en það.

Og stundum þarf bara að svipta símann húslyklinum.

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗