Stundum með góðri ástæðu.
Ótti getur bent okkur á eitthvað sem við þurfum að skoða betur. Vandinn byrjar kannski þegar við ruglum tilfinningunni saman við niðurstöðuna.
„Þetta er áhættusamt.“
Er það?
Eða er ég hræddur?
Það er ekki alveg sama spurningin.
Áhættumat kallar á tölur, sviðsmyndir og spurningar. Hvað getur gerst? Hversu mikið get ég tapað? Hvað gerist ef tekjurnar verða minni en ég reikna með? Hversu lengi get ég staðið undir því? Hvað get ég gert til að minnka áhættuna?
Óttinn gerir sjaldnast þessa útreikninga. Hann segir bara: „Ekki fara þangað.“
Ég hef sjálfur þurft að læra að stoppa aðeins þegar þetta gerist og spyrja:
Er ég að meta áhættu, eða er ég að hlusta á sögu sem óttinn er að segja mér?
Stundum er niðurstaðan sú sama. Maður á ekki að fara af stað.
En mér finnst mikilvægt að vita af hverju