Þar hefur stundum komið upp undarleg tilfinning um að ég verði fyrst að ganga alveg frá því gamla.
Klára verkefnin. Loka öllum endum. Uppfylla allar væntingar. Svara öllum spurningum.
Svo megi ég byrja á því nýja.
En lífið virðist ekki virka þannig.
Sumt klárast ekki. Sumt heldur bara áfram í minni mynd. Sumt getur lifað án þess að fá allan tímann okkar. Og sumt þarf einfaldlega að fá að fjara út.
Kannski höfum við stundum of þrönga hugmynd um hvað það þýðir að breyta um stefnu.
Það þarf ekki alltaf að vera stór dramatísk ákvörðun þar sem maður brennir brúna á eftir sér.
Stundum er breytingin miklu hljóðlátari.
Maður ákveður einfaldlega hvað fær besta tímann, orkuna og athyglina núna.
Það gamla þarf ekki að hafa verið rangt.
Það þarf heldur ekki að vera búið.
Kannski er einfaldlega komið að einhverju öðru.