Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar greinar

Lífið og gildin

Mundu hver þú ert. Then fucking go for it.

Gefðu þér tíma. Leggðu símann frá þér. Leggðu höndina á hjartað og andaðu rólega. Teldu upp að fimm á innöndun og aftur upp að fimm á útöndun. Endurtaktu þetta þar til þú hægir nógu mikið á þér til að heyra í sjálfum þér.

Eftir Vilbert Gústafsson

Vertu þarna aðeins.

Hlustaðu.

Hvað skiptir þig máli? Fyrir hvað stendur þú? Hvað viltu að líf þitt standi fyrir, líka þegar það kostar eitthvað?

Hugsaðu um það sem þú hefur gengið í gegnum. Það sem þú hefur staðið af þér. Dagana sem þú vissir ekki alveg hvernig þú ætlaðir að komast í gegnum, en gerðir það samt.

Finndu hjartað slá undir lófanum.

Þetta hjarta hefur slegið fyrir þig í gegnum þetta allt.

Og hugurinn þinn hefur fundið leiðir áður, líka þegar þú sást þær ekki strax.

Leyfðu þér að finna hvað þig langar í raun og veru. Hver þú ert í raun og veru.

Ekki hvað þú átt að vilja. Ekki hvað lítur vel út. Ekki eitthvað sem aðrir eltast við.

Hvað vilt þú?

En þú þarft ekki að gera þetta einn.

Finndu rétta fólkið.

Fólkið sem segir þér satt, líka þegar það er óþægilegt.

Fólkið sem lyftir öðru fólki upp.

Fólkið sem þorir sjálft.

Fólkið sem þú getur lært af og vaxið með.

Vertu sjálfur þannig manneskja fyrir annað fólk.

Stattu með fólkinu þínu. Fagnaðu sigrum þess. Segðu sannleikann þegar þarf.

Veldu vel hverjum þú gefur tíma, traust og pláss í lífi þínu.

Ekki bíða eftir að allt róist.

Ekki bíða eftir að óttinn hverfi.

Ekki bíða með að hrósa.

Ekki bíða með að faðma.

Ekki bíða með að sýna ást þína.

Ekki bíða eftir næsta ári, rétta tímanum eða því að allir skilji hvað þú ert að gera.

Þú ert hér núna.

Byrjaðu.

Prófaðu. Lærðu. Talaðu við fólk. Æfðu þig. Leggðu vinnuna í þetta.

Mættu aftur þegar spennan er farin.

Þegar enginn klappar.

Þegar hugmyndin er ekki lengur ný.

Þegar það eina sem bíður þín er vinnan sem þarf að gera.

Ef leiðin sem þú ætlaðir að fara lokast, finndu aðra.

Hringdu aftur. Spurðu annan. Prófaðu öðruvísi.

Ekki rugla fyrsta nei-inu saman við endanlegt svar.

Og þegar á reynir, mundu hvað þú fannst þegar þú lagðir höndina á hjartað.

Hvað skiptir þig máli.

Fyrir hvað þú stendur.

Af hverju þú byrjaðir.

Og hverjir standa með þér.

Finndu sjálfan þig.

Finndu rétta fólkið.

And then fucking go for it.

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗