Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar greinar

Lífið og gildin

Heill maður

Minning um pabba minn, Gústaf Adolf Ólafsson

Eftir Vilbert Gústafsson

Pabbi minn, Gústaf Adolf Ólafsson, fæddist árið 1949, á tímum þegar Ísland var að skríða út úr einum heimi og inn í annan.

Gamla Ísland sjávarplássa, sveita, þröngra húsa og harðra lífskjara var enn lifandi, en nýr tími var farinn að banka fast á dyrnar.

Á yfirborðinu var þetta tími framfara. Fólk vildi trúa því að betra líf væri að fæðast. Meiri vinna, betri kjör, meiri tækni og fleiri möguleikar.

En undir framfaratrúnni lá líka ótti. Heimurinn var kominn inn í kalt stríð.

Inn í þennan heim fæddist pabbi.

Ekki inn í auð eða sérstök þægindi, heldur inn í lítið hús sem hét Breiðholt. Þar ólst hann upp með foreldrum sínum og stórum systkinahópi.

Þar máttu þröngt sáttir sitja.

Húsið var lítið, fólkið margt, en hjartað og hugurinn stór.

Kannski varð einhver hluti mótsagnarinnar í honum til þarna. Hann ólst upp í litlu húsi, í landi sem var að stækka í eigin augum. Í samfélagi sem var að verða nútímalegra en bar enn með sér harðneskju fyrri tíma.

Slíkur heimur býr ekki endilega til slétta menn.

Hann getur búið til menn sem eru bæði harðir og viðkvæmir, tortryggnir og rómantískir, sjálfstæðir og tryggir, öfgafullir og mildir.

Maður sem tók afstöðu

Sem ungur maður hafði pabbi mikla bíladellu. Hann var enda á besta aldri þegar bandarísku bílarnir voru hvað glæsilegastir. V8 vélar, króm og mjúkar línur.

Það er dálítið skemmtileg mótsögn í því að hann gat haft takmarkaða þolinmæði gagnvart Bandaríkjunum sem stórveldi en um leið haft mikið auga fyrir bandarískum bílum.

Víetnamstríðið mótaði djúpt viðhorf hans til heimsmála. Fyrir honum varð það táknmynd þess hvernig stórveldi gátu talað um frelsi og lýðræði en samt beitt afli sínu gegn fátæku fólki langt í burtu.

Pabbi stóð sjaldnast með valdinu í slíkri sögu.

Hann stóð með þeim smáu, þeim þrjósku, þeim sem létu ekki yfirbuga sig þótt ofureflið væri margfalt.

Nærvera bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hafði líklega líka sitt að segja. Pabbi hafði takmarkaða þolinmæði gagnvart „kananum“, eins og hann orðaði það sjálfur.

Bandaríkjamenn gátu í hans orðaforða orðið „tyggjókjaftar“ og hann hélt því stundum fram að menn sem hefðu unnið of lengi fyrir kanann væru ónýtanlegir þegar til alvöru vinnu kæmi.

Það var auðvitað öfgafullt og hart kveðið.

En þetta var líka pabbi í sinni tærustu mynd.

Hann tók afstöðu. Hann setti hlutina í sterkt myndmál. Og hann sagði þá þannig að þeir gleymdust ekki auðveldlega.

Millimetrar, ekki tommur

Pabbi varð járniðnaðarmaður, plötu og ketilsmiður, og lauk bæði iðnmenntun og meistararéttindum.

Hann var ekki maður sem talaði sig lengi í kringum hlutina.

Hann vildi sjá þá gerða.

Sem járniðnaðarmaður hafði hann auðvitað sterkar skoðanir á öðrum iðngreinum, eins og góðum járniðnaðarmanni sæmir.

Hann taldi, líklega að stórum hluta til þess að æra óstöðuga, að menn þyrftu að vera heldur takmarkaðir til að leggja fyrir sig pípulagnir eða rafvirkjun.

Samanburðinn á járniðnaðarmönnum og trésmiðum þurfti heldur ekki að ræða lengi.

Það nægði, að hans mati, að benda á að annar hópurinn ynni í millimetrum en hinn væri enn einhvers staðar í tommum og sentimetrum.

Þetta var pabbi að segja sögur.

Maður vissi ekki alltaf hvort hann meinti það sem hann sagði alveg, eða bara nógu mikið til þess að hafa gaman af því að segja það.

Hann hafði þessa blöndu af skoðun, húmor, ögrun og sannfæringu sem gerði það að verkum að setningarnar lifðu lengur en samtalið.

Rómantíkerinn

Það var líka önnur og mýkri hlið á honum.

Þótt pabbi hafi hvorki verið hippi né sérstakur Bítlaaðdáandi var hann rómantískur í hjarta sínu.

Hann hafði næmt auga fyrir fegurð, sérstaklega fegurð kvenna, og fátt fannst honum fallegra en vel til höfð kona í kjól.

Ja, nema kannski ólétt kona.

Í hans heimi var fátt fegurra en kona með barni.

Hann lét heldur ekki sitt eftir liggja á þeim vettvangi.

Árið 1968 fæddist Linda systir mín. Ég kom árið 1973, Arnviður 1976, Lóa 1978, Jói 1981 og Gústi 1985.

Eingöngu af tillitssemi við konur kaus pabbi að dreifa þessu álagi á þrjár þeirra.

Unnur gaf okkur Lindu. Guðríður, mamma mín, sá um mig. Anna Gulla gaf okkur hin yngri.

Ekki síst á þessum þremur konum má sjá að pabbi var næmur bæði á fegurð og mannkosti. Þær eru allar glæsilegar konur, góðum kostum gæddar og margt til lista lagt.

En þrátt fyrir það hefði sennilega ekki verið sanngjarnt að leggja okkur öll, og pabba þar með, á herðar einnar þeirra.

Þetta var kannski ekki stöðluð fjölskyldumynd.

En hún var okkar fjölskyldumynd.

Stór, litrík, flókin, stundum óreiðukennd, en full af fólki sem átti rætur í honum.

Og eftir því sem árin liðu varð æ skýrara hvað stóð hjarta hans næst.

Fólkið hans.

Foreldrar, systkin, barnsmæður, börn, barnabörn, barnabarnabörn og vinir.

Það sem maður safnar

Pabbi safnaði ekki miklum veraldlegum eigum og það virtist aldrei vera sérstakt keppikefli hjá honum.

Hann hafði lítinn áhuga á peningum sem markmiði í sjálfu sér.

Stundum hafði ég það á tilfinningunni að honum þættu peningar jafnvel hættulegir. Að þeir gætu sundrað fólki, ruglað gildismat þess og gert menn verri en þeir þyrftu að vera.

Ég hugsa öðruvísi um sumt af þessu í dag.

En kannski er það líka hluti af því sem við erfum frá foreldrum okkar. Ekki aðeins skoðanirnar sjálfar heldur spurningarnar sem við þurfum síðar að svara fyrir okkur sjálf.

Ekki fullkominn maður

Það er auðvelt að tala fallega um látna menn með því að slípa af þeim alla kanta.

En þá hverfur líka maðurinn.

Þegar ég hugsa til pabba koma ekki fyrst upp fullkomnar setningar.

Það koma orð.

Bráðskarpur. Orðheppinn. Hraustmenni. Skapmaður. Góður verkmaður. Hjartahlýr. Viðkvæmur. Bráðlátur. Öfgafullur. Raunargóður. Vinur vina sinna. Trúr. Breyskur. Prakkari. Mistækur. Hugrakkur.

Og margt fleira.

Og hann var pabbi minn.

Kannski er það einmitt það sem stendur eftir.

Ekki mynd af fullkomnum manni heldur heilum manni.

Manni með birtu og skugga, styrk og veikleika, ást og bresti.

Manni sem snerti fólkið í kringum sig. Ekki alla á sama hátt, en fáa með engu.

Hann hafði fullt leyfi til þess að vera mótsagnakenndur.

Sem Guðs barn var hann breyskur.

Og kannski er það einmitt það sem ég met svo mikils við hann.

Af ávöxtunum

Í mínu hjarta og mínu gildismati eru áhrif hans sýnileg og velkomin.

Sumt af breyskleikum hans býr líka í mér.

En mannkostirnir gera það líka.

Og fyrir það er ég þakklátur.

Einhvers staðar segir að af ávöxtunum skuli þekkja stofninn.

Þegar ég horfi á systkin mín, barnabörnin hans og barnabarnabörnin sé ég að stofninn var sterkur, þótt greinarnar hafi ekki alltaf vaxið beint.

Pabbi kenndi mér margt.

Sumt með orðum.

Sumt með verkum.

Sumt vil ég bera áfram.

Og sumt vil ég gera öðruvísi.

Það er líka hluti af arfleifð foreldra.

Við fáum ekki bara það sem var fullkomið. Við fáum manneskjuna alla. Og kannski kennir það okkur mest um að elska, fyrirgefa, vera þakklát og vera auðmjúk.

Ég er þakklátur fyrir að hafa átt hann að.

Þakklátur fyrir styrkinn, sögurnar, húmorinn, hlýjuna, vinnusemina, tryggðina og alla þessa ósléttu mannlegu fegurð sem fylgdi honum.

Ég er líka þakklátur fyrir að mega sjá hann skýrt og heiðarlega.

Ekki sem fullkominn mann.

Heldur sem Guðs barn, sem mann og sem pabba minn.

Takk fyrir allt, elsku pabbi minn. Líka það sem við gerum öðruvísi næst.

Guð blessi þig og veiti þér góða vinda, pabbi minn.

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗