Vilbert.Skrifaðu mér
← Allar greinar

Tækni og sköpun

Drive → Mappa 17 → Hugmyndir

Þann 15. september 2026, klukkan átta um kvöldið, settist ég niður með um tuttugu manna hópi.

Eftir Vilbert Gústafsson

Við höfðum ákveðið að skipta okkur í minni hópa, fjögurra til sex manna. Tilgangurinn var einfaldur. Að vinna að markmiðum okkar, deila reynslu og styðja hvert annað.

Daginn eftir fór ég að velta einu fyrir mér.

Hvernig myndum við halda utan um þetta?

Ekki þannig að utanumhaldið tæki yfir starfið. Ekki með enn einu verkefnastjórnunarkerfinu. Ekki með löngum verkefnalistum, tilkynningum og mælaborðum sem enginn nennir að opna eftir þrjár vikur.

Bara einhverju litlu.

Kerfi sem hjálpaði hverjum og einum að skrá eitt markmið, nokkrar mikilvægar aðgerðir og það sem gerðist á milli funda.

Kerfi sem héldi utan um samtalið án þess að verða samtalið.

Hvað þarf ég raunverulega að læra?

Ég hef lengi haft áhuga á MVP.

Hugtakið er oft skilið sem lítil eða ófullkomin útgáfa af vörunni sem við ætlum einhvern tíma að smíða.

En ég held að það sé ekki alveg rétt.

MVP er ekki endilega minnsta útgáfan af vörunni.

Það er minnsta trúverðuga tilraunin sem getur kennt okkur eitthvað sem skiptir máli.

Áður en maður ákveður hvað á að smíða þarf því að spyrja:

Hvað þarf ég raunverulega að læra?

Og hvaða ákvörðun ætla ég að taka þegar svarið liggur fyrir?

Í þessu tilfelli var spurningin ekki hvort ég gæti smíðað kerfi fyrir mastermind-hópa.

Ég vissi að ég gæti líklega smíðað eitthvað.

Spurningin var hvort lítill og afmarkaður rammi gæti hjálpað raunverulegum hópi að halda utan um markmið, aðgerðir og gagnkvæman stuðning.

Myndi fólk stofna hóp?

Myndi það bjóða öðrum inn?

Myndi það skrá raunveruleg markmið?

Myndi það uppfæra stöðuna?

Myndi hópurinn nota kerfið á næsta fundi?

Og kæmi fólkið aftur þegar nýjungin væri farin?

Ég gat hugsað um þessar spurningar í nokkra mánuði.

Ég gat líka byrjað að leita svara.

Scope er ekki bara skjal

Þann 17. september byrjaði ég að smíða.

Áður hafði ég reynt að afmarka hvað þyrfti að vera í fyrstu útgáfunni og, ekki síður mikilvægt, hvað ætti ekki að vera þar.

Eitt markmið á mann.

Ein til þrjár aðgerðir.

Lokaður hópur.

Sameiginleg sýn á stöðuna.

Mánaðarlegir fundir þar sem hópurinn fagnar sigrum, ræðir lærdóm og ákveður næstu skref.

Ekki verkefnastjórnunarkerfi.

Ekki samfélagsmiðill.

Ekki samskiptakerfi.

Ekki allt sem gæti mögulega orðið gagnlegt síðar.

Af fenginni reynslu hef ég lært að scope er ekki bara skjal. Það þarf að vera nógu skýrt til að erfitt sé að semja við það.

Ég prófaði einu sinni sama verkefni, sama prompt og sömu scope-skrá á tveimur mismunandi gervigreindarmódelum.

Annað skilaði 11.295 orðum.

Hitt skilaði 2.747.

Sama verkefni. Sama skilgreining. Gjörólík túlkun á því hvað „innan scope“ þýddi.

Stundum veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta.

Þegar gervigreind gerir okkur kleift að smíða meira á skemmri tíma verður afmörkun ekki minna mikilvæg.

Hún verður mikilvægari.

Spurningin er ekki lengur aðeins hvað við getum smíðað.

Hún verður líka hvað við höfum dómgreind til að sleppa að smíða.

Ef eiginleiki minnkar ekki mikilvæga óvissu, bætir ekki lærdóminn og er ekki nauðsynlegur til að gera tilraunina trúverðuga, af hverju ætti hann þá að vera með?

Kannski seinna.

En ekki enn.

Fjórum dögum síðar

Þann 21. september fór Mastermind.is í loftið.

Fjórum dögum eftir að smíðin hófst.

Mér finnst varan frábær.

En það er bara ekki það sem skiptir mestu máli.

Ég smíðaði hana. Ég þekki hugsunina á bak við hana. Ég veit af hverju hver hluti er þarna og ég sé auðvitað virðið sem ég vona að hún geti skapað.

En mín eigin skoðun er ekki marktæk staðfesting á tilgátunni.

Fólkið sem varan er ætluð þarf að sjá virði í henni.

Það þarf að nota hana.

Eða nota hana ekki.

Það þarf að rekast á hluti sem ég sá ekki fyrir, misskilja eitthvað sem mér fannst augljóst og biðja um eitthvað sem ég taldi ekki mikilvægt.

Kannski hjálpar kerfið hópunum.

Kannski stendur það í vegi fyrir þeim.

Kannski er þetta nákvæmlega nógu mikið.

Kannski er þetta enn of mikið.

Ég veit það ekki.

En ég ætla ekki að bíða í ár eftir fyrstu raunverulegu vísbendingunum.

Nú getur tilraunin byrjað

Það er auðvelt að rugla saman því að setja vöru í loftið og því að staðfesta hugmynd.

Þetta er ekki sami hluturinn.

Að Mastermind.is sé komið í loftið sannar ekki að tilgátan haldi. Það sannar fyrst og fremst að hægt var að búa til afmarkaða útgáfu og koma henni í hendur fólks.

Nú fyrst getur tilraunin byrjað.

Nú getur veruleikinn svarað.

Það er eiginlega stærsti kosturinn við að geta smíðað hratt með gervigreind.

Ekki að við getum framleitt fleiri eiginleika.

Ekki að við getum komið fleiri vörum í loftið.

Heldur að við getum stytt tímann sem við eyðum í að trúa eigin hugmyndum án þess að leyfa veruleikanum að prófa þær.

Ef ég hefði eytt næstu mánuðum í að bæta við eiginleikum sem tilraunin þurfti ekki, hefði ég ekki endilega verið að bæta vöruna.

Ég hefði getað verið að fresta svarinu.

Hugmynd getur verið falleg inni í möppu.

Hún getur verið rökrétt, vel útfærð og með sannfærandi viðskiptamódel í Excel.

Enginn notar hana.

Enginn misskilur hana.

Enginn hafnar henni.

Þess vegna getur hún haldið áfram að líta út fyrir að vera frábær.

Tilgáta lærir ekkert þegar heimilisfangið hennar er:

Drive → Mappa 17 → Hugmyndir.

Hvar býr þín?

Höldum sambandi

Ný skrif frá mér

Ég sendi af og til ný skrif, hugmyndir sem ég er að vinna með og eitthvað sem mér finnst þess virði að deila.

Þangað til máttu skrifa mér ↗